Einbeittu þér að vextinum, geymdu fjármálin hjá okkur
Stjórnaðu fjármálum fyrirtækisins af nákvæmni og skilvirkni. Fáðu skýrari mynd og bættu reksturinn.
Sérsniðið fyrir íslensk fyrirtæki
Netbókhald er sérstaklega ætlað litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi sem vilja einfaldar og árangursríkar lausnir fyrir bókhald sitt. Fyrirtæki sem kjósa að stjórna bókhaldinu sjálf án þess að þurfa að ráða sérfræðiþjónustu finna hér lausn sem uppfyllir þeirra þarfir á hagkvæman hátt.

Fjárhagskerfi
Skuldunauta- og lánadrottnakerfi er innbyggt sem og allar nauðsynlegar skýrslur, s.s. virðisaukaskattskýrslur, hreyfingar- og stöðulistar o.fl.

Launakerfi
Starfsmannaupplýsingar og launaskjöl. Engin takmörkun á fjölda starfsmanna. Skilagreinar til lífeyrissjóða og stéttarfélaga og staðgreiðsla.

Bankatenging
Bankatenging er viðbót við Sölu- og Fjárhagskerfið. Tengingin gefur kost á að stofna kröfur og lesa greiðslur beint í bókhaldið.

Einfaldar skýrslur
Skýrslurnar eru ómetanlegar þegar kemur að því að fá yfirsýn yfir rekstur. Þær veita mikilvægar upplýsingar á skipulegan og auðskiljanlegan hátt, sem gerir það auðveldara að taka upplýstar ákvarðanir.

Sjálfvirkni
Sjálfvirknin tryggir að bókhaldið sé ávallt nákvæmt og uppfært, hvort sem það er við útreikning skatta, skráningu færslna eða útgáfu reikninga.
Hvað segja notendurnir?
Ekki bara hlusta á okkur - hlustaðu á notendurna okkar. Það eru þau sem nota Netbókhalds.
Við höfum notað Netbókhald frá 2012. Netbókhald er einfalt í notkun og þar er persónuleg þjónusta -- sem er alveg frábær.
Ofboðslega góð þjónustulund! Ég valdi Netbókhald vegna þessu hversu einfalt það er í notkun og þjónustan er skjót og skilvirk.
Ég er alltaf jafn hissa á hve góð þjónustan er hjá Netbókhald. Helstu kostir eru einfalt kerfi, sanngjarnt verð og góð þjónusta.
Einfalt, fljótlegt og öruggt
Fullkomið fyrir einstaklinga eða lítil fyrirtæki sem vilja vaxa án þess að óttast hækkandi gjöld.
Ertu með bókara?
Ef bókhaldið verður of flókið, gefurðu bara bókararnum aðgang - Engin aukagjöld, ekkert vesen.
Algengar vangaveltur
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um þjónustu okkar og notkun Netbókhalds. Við vonum að þetta hjálpi, en ef þig vantar að vita eitthvað, endilega hafðu samband við okkur á netbokhald@netbokhald.is.
-
Hvernig get ég byrjað að nota Netbókhald á sem einfaldastan hátt?
Við mælum með að þú byrjir á vídeókennslunni okkar, þar sem þú færð yfirgripsmikið yfirlit yfir allar helstu aðgerðir. Smelltu á [þennan tengil] til að byrja.
Ef þú lendir í vandræðum, þá erum við alltaf til staðar til að svara öllum spurningum fagmannlega, þú getur sent okkur línu á netbokhald@netbokhald.is
-
Er hægt að setja logo á reikninga?
Já þú getur sett logoið inn í stillingar fyrirtækis á öllum algengustu myndformum
-
Er einhver takmörk á fjölda reikninga sem ég má búa til á mánuði?
Nei, þú hefur fullt frelsi til að búa til eins marga reikninga og launaskjöl og þú þarft, án nokkurra takmarkana.
-
Fara reikningarnir sjálfkrafa í bankann hjá kaupandanum?
Já, þú getur stofnað kröfur sem fara beint í bankann hjá kaupandanum. Þegar þú hefur stofnað margar kröfur geturðu sent þær allar í einu.
Við eigum auðvelt myndband sem útskýrir uppsetninguna á bankastillingum, [sjá hér]. -
Hvernig sendi ég gögn til lífeyrissjóða og stéttarfélaga?
Þú notar Gagnaskil sem er í listanum til vinstri, smellir á skila hnappinn við "Lífeyrissjóðir og stéttarfélög" Í fyrsta skipti sem þú sendir gögn, þá ertu mögulega beðinn um notandanafn og lykilorð sem þú færð hjá sjóðnum, oftast í gegnum heimasíðuna hjá þeim.
-
Hvernig veiti ég bókara eða starfsmanni aðgang að kerfinu?
Farðu í "Stillingar fyrirtækis", undir "Notendur" bætir þú við nýjum notanda með kennitölu og netfangi. Þú getur þar stillt aðgang þeirra að ákveðnum kerfiseiningum.
Bókarinn/starfsmaðurinn getur í kjölfarið skráð sig inn með rafrænum skilríkjum í Netbókhald.
-
Hvað geri ég ef starfsmaður hættir hjá fyrirtækinu?
Þú ættir að gera eftirfarandi:
1. Afvirkja aðgang starfsmannsins í "Notendur" undir stillingum fyrirtækis. Þú ferð í stillingar fyrirtækis - Notendur - smellir á græna merkið "virkur" og það breytist í "óvirkur"
2. Afvirkja starfsmanninn í launakerfinu eftir að öll laun hafa verið skráð. Þú ferð í Laun - Starfsfólk - smelltu á græna merkið "virkur" og það breytist í "óvirkur"
-
Hvernig stofna ég reikning á erlendan viðskiptavin?
Það eru þrjú skref:
1. Fljótasta leiðin er að fara í plús merkið í bláu línunni og velja stofna viðskiptamann - Þú sleppir kennitölunni en skráir aðrar upplýsingar um viðskiptamanninn
2. Ef gjaldmiðillinn er ekki skráður, bætirðu honum við undir "Stofngögn - Gjaldmiðlar". Alltaf er gott að yfirfara hvort gengið sé rétt á gjaldmiðlinum
3. Stofna reikning og velja réttan vsk (oftast 0% fyrir útflutning).
-
Ég get ekki valið rétta VSK prósentu á reikningi, hvað geri ég?
Þú þarft að virkja réttan bókhaldslykil undir "Stofngögn - Bókhaldslyklar". Hvert lykilnúmer tengist ákveðinni VSK prósentu, svo sem 24%, 11% eða 0%.
Bókhaldslyklarnir eru nr. 500-200(24%), 500-300(11%), 500-400(0% útflutningur) og 500-500(0% innanlands)
-
Hvernig afrita ég reikning frá síðasta mánuði?
Farðu í eldri reikninginn, veldu "Aðgerðir" og smelltu á "Afrita reikning". Aðlagaðu síðan viðskiptavin, dagsetningar og vörulínur eftir þörfum.
-
Hvað geri ég ef viðskiptavinur biður um hreyfingalista?
Þú finnur þetta undir "Skýrslur - Skuldunautar - Hreyfingalisti". Þú getur afmarkað tímabilið, valið viðskiptavin og sent skýrsluna í tölvupósti beint úr kerfinu.
-
Ég er með vörulista sem ég þarf að setja inn í Netbókhald, hvað geri ég?
Heyrðu í okkur, og við skoðum hvort við getum sett vörulistann inn fyrir þig til að minnka vinnu þína. Við hjálpum einnig við skráningu viðskiptamannalista ef það er þörf.
-
Hvernig skrái ég greiðslur til stéttarfélaga?
Netbókhald geymir lista yfir stéttarfélögin sem þú velur á starfsmann í stofngögnum starfsmannsins. Þú þarft að skrá hlutfall sem starfsmaður greiðir og hlutfall sem launagreiðandi greiðir.
Upplýsingar um hlutföllin eru á heimasíðu stéttarfélagsins.
-
Hvernig bý ég til rafræna reikninga fyrir viðskiptavini?
Hafðu samband við Netbókhald til að fá aðgang að rafrænni skeytamiðlun. Við tengjum þig við skeytamiðlara og útskýrum hvernig þú sendir reikninga rafrænt.
Þú merkir viðskiptamanninn þannig að hann vilji rafræna reikninga og það birtist hnappur sem minnir þig á að senda reikninginn rafrænt
-
Viðskiptavinur biður um alla reikninga síðasta árs, hvernig finn ég þá?
Farðu í "Viðskiptamenn", finndu viðkomandi viðskiptavin og veldu "Sjá alla reikninga" (neðra boxið til vinstri). Merktu við reikningana og veldu "Senda í tölvupósti" eða "Sækja sem PDF".
-
Bókhaldslykill kemur ekki fram í listanum, hvað geri ég?
Hann er líklega óvirkur. Þú virkjar hann undir "Stofngögn - Bókhaldslyklar". Ef lykillinn er ekki til, býrðu til nýjan lykil með því að velja "Stofna undirlykil".
-
Ég er að bóka fjárhags skjal en veit ekki á hvaða lykil ég á að bóka
Svarið við þessari spurningu getur bæði verið einfalt og flókið.
Einfalda svarið er að bóka á réttan lykil, en til að vera viss um að lykillinn sé réttur þarftu að hafa ákveðna bókhaldsþekkingu.
Við mælum með að horfa á kennsluvídeóið okkar, þar sem við förum yfir bestu vinnuaðferðirnar í bókhaldi.
Í sumum tilvikum getur verið nauðsynlegt að búa til nýjan bókhaldslykil, en það eru líka aðrir þættir sem hafa áhrif á hvaða lykil á að nota. Til dæmis hvort virðisaukaskattur sé innifalinn í bókuninni, hvort verið sé að bóka gjöld eða tekjur, og hvernig bókhaldið hefur verið unnið fram að þessu.
Endanlega lausnin fer því eftir hverju tilfelli fyrir sig. Við erum alltaf tilbúin til að aðstoða þig og leiðbeina þér í rétta átt. Ef við höfum ekki strax lausn, þá vísum við þig til bókara eða endurskoðanda. -
Hvernig bakfæri ég fjárhagsskjal?
Til að bakfæra fjárhagsskjal þarftu að fylgja þessum skrefum:
1. Farðu í "Fjárhagur" og síðan "Fjárhagsskjöl".
2. Notaðu leitarfilterinn til að finna viðkomandi skjal.
3. Smelltu á númer skjalsins (lengst til vinstri).
4. Veldu "Aðgerðir" og síðan "Bakfæra fjárhagsskjal".
Þegar þú bakfærir skjalið verður til sams konar færsla, nema upphæðir verða með öfugu formerki og textanum verður breytt til að endurspegla bakfærsluna. Að lokum geturðu smellt á "Bóka" til að ljúka ferlinu.
Athugaðu að ekki er hægt að bakfæra færslur sem koma frá öðrum kerfiseiningum en fjárhagskerfinu. Ef um er að ræða færslu úr t.d. bankakerfi, þá þarf að búa til nýtt fjárhagsskjal og bakfæra færsluna handvirkt.
Hafðu samband
Sendu okkur línu með þínum þörfum og við svörum fljótt.
Ef það er eitthvað sem þú vilt vita meira um kerfið áður en þú ákveður þig. Sendu okkur þá línu.